Friday, January 30, 2004

fariði 

folk.is/gudmunda

ATH 

Gamlar konur á skólabekk!!!!

Ef þið eruð það tregar að geta ekki verið í fjarnámi gerið það þá allavega fyrir okkur hin að halda kjafti í tíma

takk fyrir

Get ekki setið kyrr 

Halló halló strumparnir mínir. Föstudagurinn komin enn og aftur og það er aftur og alltaf jafn yndislegt. Það er nú voða lítið að frétta en ég hef samt alltaf nóg að segja. Hæst blæs í tómri tunnu einsog vitur maður sagði. Ég er nú komin með vinnu loksins en fyrir þá sem ekki vita þá voru aftur eigandaskipti á Hótel Selfoss mjög snögglega þegar átti að fara að opna og vinur minn hann Siggi Skúli sem var búin að lofa mér vinnu var bara rekinn med det samme. Þannig að eg stóð bara þarna berskjölduð og atvinnulaus því að krakkarnir á Hótel Örk fluttust öll með eigandanum á selfoss. En þá sótti ég bara um á Örkinni og er að fara að vinna á laugardaginn. Ef ég veit þá ennþá hvernig það er gert því ég hef ekki unnið handtak síðan í nóvember.
Ég hef nú ekki orðið vör aftur við draugaganginn í Gilhaga en ég er þó við öllu búin og er búin að ákveða að tala bara við hann næst greyið, hann var eitthvað svo einmanna. Þetta hús á nú langa draugasögu og það kemur engum á óvart þegar ég segist hafa séð draug þarna því það er bara frægt fyrir svona uppákomur húsið á sléttunni. En nú verð ég að drífa mig í tíma en verið við öllu viðbúinn því brátt mun ég senda ykkur á enn nýjan stað til að lesa um mig og mína því ég er ekki nógu ánægð með þetta bloggspot. Ég hef ákveðið að búa mér til síðu á fólk.is og bráðum getið þið kíkt á mig á folk.is/gudmunda. Ég get ekki setið kyrr nei ég get.............................

Wednesday, January 28, 2004

Vottur af vori 

Ég var að keyra í skólan í dag kl svona um það bil 10 því ég svaf yfir mig. Einsog þið vitið var Janúar morgun og sólin var að koma upp. Ég fékk allt í einu alveg óstjórnanlega löngun til að keyra framhjá skólanum og eitthvað út í buskan. Gat ekki ákveðið hvort ég ætti að fara Austur til móts við sólina eða Vestur og hafa hana í bakinu. Eða hreinlega hin gullna meðalveg. Ég fór í skólan og ég er svöng.

Saturday, January 24, 2004

Horror Friday 

Hæ spæ. Það er Laugardagsmorgun og ég er bara glaðvakandi og hress. Ég þakka busum FSu fyrir það. Málið er að Inga Berglind hélt upp á afmælið sitt í gær einsog vant er í janúar og þær ætluðu á FSu ball í Ingólfshvoli og ég ætlaði sko EKKI með. En Inga var náttúrulega með bollu og stemmara og ég ákvað að skella mér með þeim. Pabbi hennar Ingu bauðst til að keyra okkur í 50 manna rútu og ég tek það fram við vorum bara 4 sem fórum í rútunni. Bara svalt. En þegar ég kom inn á ballið féllust mér hendur. Ímyndið ykkur að vera 18 ára ung stúlka í blóma lífsins og stíga inn á dansiball sem þið eruð ELSTA MANNESKJAN Á!!! Og ekki nóg með það að ef maður vogaði sér að svo lítið sem lyfta bjórdós eða öðru íláti með áfengum vökva upp að andlitinu þá spratt upp úr jörðinni einhver gæsla og hrifsaði af manni búsið. Eftir það hristi ég hausinn og ákvað að fá mér eina sígarettu í sárabætur og hugsa minn gang. Svona u.þ.b. tveim sekúndum eftir að ég hafði kveikt í spratt annar álfur upp úr jörðinni með öskubakka og benti mér á með illu augnaráði að drepa í rettunni. Þá var mér nú allri lokið og rölti eitthvað til að reyna að finna fólk á mínu reiki en á leið minni í gegnum fjöldan duttu á mig allskyns busar. Ælandi, slefandi og gleypandi hvort annað hlussuðust þau á mann einsog að þyngdarlögmálið hafi allt í einu horfið af jörðinni. Ég gerði samt eina tilraun til að bjarga kvöldinu og gekk upp að einum busa sem ég sá að var með vodkapela í rassvasanum og ég þóttist vera í gæslu. Hann var skíthræddur og sagðist vera blá edrú og þegar ég spurði um aldur var hann allt í einu 19 ára.. en ólukkulega hafði hann gleymt skilríkunum sínum heima. En þegar ég, gæslumaðurinn ógurlegi, ætlaði að taka vodkapelan í mína vörslu hljóp hann einsog fætur toguðu inn á karlaklósett. Þá ákvað ég að fara af þessum ógurlega stað og Svenni var svo góður að heimta mig úr helju.
Raunum mínum var nú samt ekki lokið þessa nótt. Ó nei. Þegar ég var að sofa mínum væra svefni finn ég allt í einu að einhver leggst hliðin á mér og mér verður alveg sjúklega heitt. Þegar ég reyni að gá hver það var gat ég ekki hreyft mig, ekki opnað augun né öskrað. Loksins þegar ég gat opnað augun var mér rosalega kalt alveg jafn snögglega og mér varð heitt og ungur, stór, ljóshærður maður í vinnuúlpu stóð fyrir framan rúmið og horfði á mig. Svo hvarf hann. Ég var svo hrædd að ég vakti Svenna og kveikti ljósið og sofnaði ekkert fyrr en undir morgun. Þið ráðið hvort þið trúið þessu eða ekki en ég var allavega skíthrædd.
En nú ætla ég að fara að gera eitthvað af viti á þessum kalda og vindsama laugardegi þó það verði nú örugglega ekki mikið. Auðbjörg, ef þú lest þetta, takk æðislega fyrir bolin.. hann er alveg geggjað flottur!

Passið ykkur á draugunum!!!

Thursday, January 22, 2004

Nú nálgast helgin á ný og bjartir dagar framundan. Valgerður vinkona er búin að vera að reyna að draga mig og alla á FSu ball á morgun en lítið gengur. Inga Berglind er svo byrjuð að gæla við þá hugmynd að halda upp á afmælið sitt á morgun og þá þýðir nú ekkert að vera edrú. Inga heldur nefnilega skemmtilegustu afmæli ever og hafa allavega tvö síðustu verið ansi skrautleg :) En það kemur bara í ljós hvað maður gerir.
Ég ætla aðeins að dást að henni Svölu Sigurgeirsdóttur í dag. Hún er alveg ótrúleg (ég var að spá í þessu í NÁT áðan) Hún er að kenna um það bil leiðinlegasta námsefnið hér í skólanum og hefur gert það í nokkur ár en þegar ég var í tíma hjá henni í dag fór ég að spá í því hvernig það er að vera kennari. Hún var að halda fyrirlestur um frumur og þess háttar fyrirbæri sem eru nú víst í okkar flókna líkama. Hún gerði það á þenn hátt að það var einsog hún væri að gera þetta í fyrsta skipti eftir að hún útskrifaðist úr háskóla því hún var svo rosalega áköf og teiknaði og teiknaði á töfluna allskonar pöddur og geislaði öll einsog að það væri gjörsamlega líf hennar og yndi að fara yfir sama námsefnið aftur og aftur fyrir sofandi krakkafífl. Já ég varð að koma þessu frá mér. Svala á hrós skilið. Og Þórunn Jóna líka, hún kennir sögu líka svona af innlifun en ég skil það alveg þvi saga er skemmtileg. Aldrei er góð saga of oft kveðinn...
Já einsog þið sjáið er ég komin með svona nokkra linka og endilega kíkið á bloggsíðurnar hjá stelpunum en gestabókin er ekki komin en það reddast fljótlega. Þetta er nú honum Svenna að þakka því ekki kann ég að gera svona lagað enda er ég næstum því fornaldarmaður. Allavega líður mér þannig hér í skólanum því ég á ekki fartölvu. Fólk bendir á mig og hlær því ég er alltaf með ritvél í tíma en ég harka það af mér.
Síðasti þátturinn af Joe millionare er í kvöld!!!! ég má veðja að hann velji ljóshærðu gelluna en hún er samt bara á eftir peningunum... hver mundi ekki vilja fá peningana????????????????

Monday, January 19, 2004

Þá er ein enn helgin yfirstaðin og ég gæti næstum því bara gert copy paste frá síðustu helgi. Nei nei ég segi svona. Það var alveg brjálað veður um helgina.. og við íslendingar sem eru alltaf að kvarta undan því að fá engan vetur lengur! Það varð algjör ófærð og fimbulkuldi (já ausa ég veit að það var kaldara í Norge, en þú getur nú ekki kvartað núna í Singapore!!) Samt datt Þóru nú í hug að fara til Reykjavíkur á föstudaginn þrátt fyrir þessa veðurspá og dró SVENNA SÆKÚ með mér í svaðið og það endaði með því að við keyrðum á 50 alla leiðina heim um kvöldið. En ég keypti mér fullt af flottum fötum. Takk kærlega fyrir LÍN :)
Á laugardagskvöldið ákváðum vð Inga að fá okkur í aðra tánna og eftir mjög skemmtilegan drykkjuleik með Gunnhildi litlu systir Þórhildar og co fórum við á HM kaffi og þar var rokkað einsog að Rolling Stones væru að spila!!! Eftir mikið jeppastand komst ég til hvílu í Gilhaga og var þar "veðurteft" til dagsins í dag.
Eftir einveru mína í dag komst ég að því að

Svartir hrafnar
njósnarar satans
Hvítar dúfur
vitorðsmenn guðs

Saman sitja þeir
hlið við hlið






Friday, January 16, 2004

Hæ hæ, ég varð að búa til nýja síðu vegna óviðráðanlegra ástæðna.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?